|
Brandarar og annað fyndið
|
09.11.2010 15:48:26 / stebba
...að vera óákveðin!
Nei, annars, ég er mjög ákveðin...en þurfti greinilega ekki svo mjög á því að halda að henda reiður á hugsanirnar!
Nýjasta nýtt hjá frúnni er samt það að ég fékk upphringingu í gær! Það var kona frá Landspítalanum...ég má koma á kynningarfund 23. nóvember og í framhaldi af því fæ ég dagsetningu í aðgerð!
Það gerir mig afskaplega spennta...og þessvegna er upplagt að setja þetta hér inn!
Annað var það sennilega ekki í dag...svo ég kannski blogga aftur...í janúar :-)
»
13.04.2010 22:00:05 / stebba
að byrja að blogga aftur. Það var gaman síðast svo kannski verður það gaman aftur. Ekki veitir manni af hjálpartæki við að henda reiður á hugsanirnar!
»
05.05.2009 09:44:23 / stebba
....darírírírírí daríríríríríríríræ..... Ég garga... Ég garga... Ég garga... Ég garga... Ég garga... Ég garga... Ég GARGA...!!!! Ég fæ enn engar atvinnulaysisbætur, þrátt fyrir að hafa sannarlega verið atvinnulaus í tæpa þrjá mánuði, reyndar rúma þrjá ef með er talinn tíminn sem ég var á spítalanum. EN...engar atvinnuleysisbætur! Ég get ekki borgað reikningar, ég get ekki keypt í matinn, ég gæti ekki keypt lyf ef við þyrftum þau, ég gæti ekki keypt föt ef við þyrftum þau, ég gæti ekki látið gera við bílinn ef hann bilaði, ég get ekki keypt nýja síma fyrir okkur Sigga þó báðir símarnir hafi ákveðið að apríl væri mánuðurinn til að DEYJA!! Svo ekki reyna að ná í okkur í gemsana, það borgar sig að hringja í heimasímann, hinir liggja bara uppi á hillu og bíða jarðafarar. Mig langar að hugsa: þetta reddast...þetta lagast....bráðum kemst þetta í gegn...bráðum verður málið tekið fyrir...við þurfum ekki svo mikið hvort sem er...sjáðu bara litlu börnin í Afríku sem eiga ekki neitt, ég hef það betra en þau...EN Ég bara get ekki hugsað svona og þá fæ ég samviskubit yfir að vorkenna mér svona og þá reyni ég að safna krafti til að vera bjartsýn og vera hress en þá klárast orkan alveg og ég verð enn vonlausari...sem þýðir að ég get alls ekki hugsað svona og fæ enn meira samviskubit svo ég reyni aðeins meira til að vera hress...og það versta er nú (í augnablikinu) að ég hef ekki einu sinni efni á að kaupa mér súkkulaði til að láta mér líða betur!! Svo nú ætla ég að hugsa um að leggjast í þunglyndi inni í rúmi, á meðan ég hugsa það ætla ég að taka til í stofunni minni, því ef ég leggst niður er ekki víst að ég standi upp aftur!! Ein uppörvandi í dag...ha??
»
25.04.2009 14:49:40 / stebba
...list er góð... Snædís mátti ekki koma með að kjósa, því hún er því sem næst læs. Sá sem ekki hefur aldur en er læs má ekki koma í kjörklefa. Sá sem ekki hefur aldur en er ekki læs má koma í kjörklefa. Sá sem hefur aldur má koma í kjörklefa HVORT sem hann er læs eða ekki!! Þetta fékk mig til að hugsa (enn meira en venjulega) Væri ekki ágætis byrjun í íslenskum menntamálum að gæta þess að kenna fólki að lesa, svo það geti kynnt sér þessa pésa sem bjóða sig fram?? Það er ekki langt síðan það var verið að ræða það hvílíkt áhyggjuefni það væri að unglingar væru að koma úr grunnskóla illa læsir. Á sama tíma var viðrar að það væri marktækur hluti þjóðarinnar sem væri illa læs! En semsagt, lýðræði á Íslandi stendur ógn af því að læs börn komi í kjörklefa með foreldrum sínum.
Stebba, sem skilur ekki alveg alltaf...
»
23.04.2009 13:08:11 / stebba
...að segja... Hvað með það þó það sé hægt að flytja inn fullt af ódýru, útlensku dóti ef við göngum í ESB. Ef við göngum í ESB verður ekki vinna fyrir fólkið til að fá peninga til að kaupa ódýra, útlenska dótið! Íslenskur landbúnaður verður troðinn í skítinn, fiskimiðin verða undir stjórn annarra en okkar, landið verður virkjað svo færri vilja heimsækja landið og ferðamannaiðnaður á undir högg að sækja því landið verður ekki lengur náttúrulegt og ósnortið! Er erfitt að skilja það að ef við göngum í bandalag við stærri og sterkari þjóðir þá fáum við ekki að ráða okkur sjálf! Það er eðli málsins! Það er heimska að halda að við fáum einhverju að ráða! Hagsmunir meirihlutans ráða alltaf! Sama hvernig við snúum því, þá verðum við alltaf í minnihluta í ESB. MINNIHLUTA!! Á Íslandi erum við sem betur fer enn í meirihluta og þannig á það að vera. Ísland fyrir Íslendinga, ekki ESB. Hættið að stara á rassinn á hvert öðru og elta asnann (spendýrið) á undan ykkur. Opnið augun, lítið upp og sjáið að framtíð Íslands felst í Íslandi! Hættið letinni, hættið vælinu, hættið sjálfsvorkuninni, hættið að bíða eftir því að einhver riddari á hvítum hesti komi að bjarga ykkur! Dvergarnir sjö hefðu fljótt hent Mjallhvíti út aftur ef hún hefði bara legið í rúmunum þeirra og vælt yfir því hvað stjúpan var vond við hana! Litla, gula hænan fann fræ. Það var hveitifræ. En þeir sem voru í kringum hana nenntu ekki að hjálpa henni. Svo hún vann verkin sjálf. Hún reyndi á sig, hún vann og hún var þolinmóð. Þegar hún svo bakaði brauðið urðu þeir sem ekki nenntu að hjálpa henni afbrýðisamir því þeir fengu ekkert nýbakað brauð. Litla, gula hænan hefði getað fengið lán hjá malaranum og bakað sér brauð. En hvernig hefði hún svo átt að borga malaranum til baka? Öndin, svínið og kötturinn voru greinilega ekkert spennt fyrir að hjálpa henni. Hún hefði staðið jafn ein frammi fyrir skuldunum eins og hún stóð ein frammi fyrir verkunum! Þetta er sannleikur sem leikskólabörn kunna! Þetta er sannleikur sem við kennum börnunum okkar! Af hverju er svona erfitt fyrir fullorðna að skilja þetta! Segjum NEI við ESB! Höldum Íslandi fyrir Íslendinga, fyrir börnin okkar! www.osammala.is
»
21.04.2009 12:40:12 / stebba
... Af hverju þarf aðskilnað ríkis og kirkju? Já, vissulega eru margir útlendingar fluttir til Íslands, sem koma frá löndum sem ekki endilega aðhyllast kristni EN hér er opinber trú, hér er kristin þjóðkirkja, alveg eins og hér er opinbert tungumál, opinber gjaldmiðill, hér er notað ákveðið letur. Ef einhverjum dytti í hug að skrifa með hýróglífum, eða reikna í dönskum krónum, þá er ekkert við því að segja. Það sem ég á við er það að fólkið sem flytur hingað verður að læra íslensku til að virka í samfélaginu, það hætti ekki að nota sitt upprunalega tungumál. Að ætlast til þess væri dónaskapur. Okkar siða og venjuheimur er mögulega öðruvísi en þeirra, það breytir því ekki að þau verða að aðlagast að heiminum hér. Ísland á ekki að breytast til að vera eins og innflytjendur eru vanir að löndin þeirra séu, sem ég reyndar hef ekki kynnst að þau krefjist. Auðvitað halda innflytjandur í sinn menningararf, alveg eins og Íslendingar gera þegar þeir fara frá Íslandi. Þetta breytir því ekki að það er þjóðtrú á Íslandi. Að sjálfsögðu á að hafa þá trú opinbera og sjáanlega. Ekki skammast múslimarnir em flytja til Íslands sín fyrir að vera múslimar. Ekki skammast þeir sem eru búddatrúar sín, kaþólikkar og svo fram eftir götunum. Samt eru það þeir sem eru að koma „ókunnugir“ inn í heilt land með annarri trú. Land sem hreinlega skammast sín fyrir trúna sína. Land sem er svo óöruggt með sig að það þorir ekki að tala um Guð sem það trúir á í skólum og á vinnustöðum. Hvernig á land sem er svona óöruggt og óstöðugt í trú að standast t.d. gagnvart valdakerfi eins og Evrópusambandinu. Hvernig er hægt að vænta þess að land sem er svona óstöðugt og óöruggt í trú geti myndað sér OG STAÐIÐ VIÐ skoðun í fiskveiðum, landbúnaði, stóriðju, alþjóðaviðskiptum, gjaldeyrismálum. Hvernig getur land sem ekki ert trútt játningu sinni í trú verið trútt játningu sinni í stundlegum málum. Svo ég segi aftur, af hverju þarf aðskilnað ríkis og kirkju? Þó það sé kennd kristnifræði í skólunum þýðir það ekki að samfélag múslima á Íslandi komist í uppnám, enda líka hvað með það! Það er enginn að krefjast þess að þeir sem eru annarrar trúar en við taki upp okkar trú! En okkur ber skylda til að tala um okkar trú! Ég VIL ekki að neinn fari til helvítis, en ég VEL ekki hverjir fara þangað. Allt sem ég get gert er að tala um trúna mína. Það er trúfelsi á Íslandi, en það er líka þjóðtrú á Íslandi. Þjótrú sem ríkinu ber skylda til að rækja og rækta. Ríkið getur ekki neytt neinn til að trúa á Guð, en því ber skylda til að halda á lofti nafni Jesú Krists og kristnum gildum. Trú er ekkert til að skammast sín fyrir. Trú er val, alveg eins og hvaða stjórnmálaflokki þú fylgir eða hvort þú borðar gular baunir eða grænar með steikinni. Það sem skiptir máli er að velja og FYLGJA SANNFÆRINGU SINNI! Þjóðin valdi að vera kristin, nú er kominn tími til að standa á þessu vali og FYLGJA SANNFÆRINGUNNI!!
»
21.04.2009 11:36:23 / stebba
»
20.04.2009 10:52:42 / stebba
Jammjamm! Ég á 25 ára afmæli á miðvikudaginn. Það verður engin veisla, af því við ætlum að halda útskriftarveislu 23. maí. Veislur kosta of marga pening fyrir budgetið þessa dagana!! En! Ég baka hinsvegar með kaffinu! Svo ef þig langar í kaffibolla og að knúsa mig þá skaltu endilega kíkja á Heiðabraut 4. Að þessu sögðu vil ég benda á að það eru alþingiskosningar 25. apríl, sem er á laugardaginn! Ekki gleyma að kjósa!
»
19.04.2009 20:37:03 / stebba
Ég vil benda öllum sem ætla að leggja land undir fót um komandi helgi að nýta sér lýðræðislegan þegnarétt sinn og lagalegan kosningarétt og KJÓSA utan kjörfundar hjá sýslumanninum sínum ÁÐUR en þeir fara af stað! Ef þú ekki kýst þá geturðu ekki kvartað yfir því sem er kosið! Ef þú segir ekki skoðun þína fyrir kosningar og greiðir þitt atkvæði þá er skoðun þín einskis virði eftir kosningar! Við höfum ekki efni á að hugsa sem svo: mitt atkvæði er bara eitt, það breytir engu! Það eru tugir þúsunda bara eins atkvæðis um allt land! Þau breyta EF ÞAU ERU NOTUÐ! Ekki skila auðu! Ekki skila ógildu! Segðu þína skoðun! Við börðumst fyrir lýðræði! Við börðumst fyrir kosningarétti! Ekki láta það hafa verið til einskis! Ekki láta aðra velja fyrir þig! Kjóstu!
»
30.03.2009 17:04:34 / stebba
Mér til skemmtunar og ykkur til ánægju ákvað ég að setja inn
örblogg!
Öllum að óvörum er Anna María lasin! Með hita, það rennur úr
eyrunum á henni og hún er bara slöpp og ergileg. Hún fer í nefkirtlatöku á
fimmtudaginn, vonum það besta í framhaldinu!
Snædís er (í alvörunni) virkilega öllum að óvörum, lasin. En
það virðist vera að ástæðulausu, því hún er líka með hitavellu og pirruð og
vælin. Það er sko ekki normið, eins og með Önnuna. Útbrotin sem hafa hrjáð hana
síðasta árið eru enn til staðar, þrátt fyrir ítrekaðar lyfja og kremameðferðir,
það er um vika síðan hún lauk síðasta kúr og hún er öll útsteypt! Hvað um það,
við sjáum nú vonanadi fyrir endann á þessu því hún fer bæði til
húðsjúkdómalæknis og til ofnæmislæknis í næstu viku. Dýrð sé Guði þá fékk hún
tíma hjá báðum á svipuðum tíma með næstum engum fyrirvara, geri aðrir betur!
Jæja, ykkar einlæg var á æðislegu námskeiði í Mósaík í Reykjavík,
innri lækning og föðurhjarta Guðs. Þetta var alveg dásamlegt. Ótrúlegt hvað maður
takmarkar Guð samt oft. Það er þessi ágæti kassi sem hentar mér svo fínt að
troða Guði í og skil svo ekkert í því að engin kraftaverk verði í mínu lífi!!
Nú er kassinn bara kominn í geymslu, Guð er kominn í hásætið þar sem hann á
heima, ég er ekki hrædd við fólk (sem alveg fram á þriðjudag var alveg
skelfilegt). Guð á svo mikið af æðislegum gjöfum og ég er svo þakklát fyrir að
fá að vera þiggjandi!
Talandi um
þiggjendur, ég ætla að segja ykkur sögu.
Einu sinni
var Siggi sem var að vinna í netagerð. Af því hvorki hann né yfirmaður hans
virðast kunna að tala saman var hann rekinn (vek athygli á því að ég segi ekki,
æ, æ, aumingja Siggi). Ég segi hinsvegar æ, æ, aumingja ég, því ég fór nett á
tauginni. Í svona fimm mínútur. Siggi var svolítið eins og hálfreytt hæna, en
það virtist enginn taka eftir því nema ég!! Nú, við semsagt sáum fram á það
vera vera bæði atvinnulaus þegar færi að líða að hausti, sirka um það leiti sem
nýjasta kraftaverkið er væntanlegt í heiminn. Það hljómaði einhvernveginn ekki
alveg nógu spennandi og þar sem það er alveg nógu erfitt hjá okkur með Sigga
einan að vinna þá sá ég fram á að við myndum ekki þrauka með hann
atvinnulausan. Svo ég bar þetta fram fyrir Guð. Þá voru nokkrir dagar liðnir
frá téðri uppsögn, komin helgi og ég að fara að heiman. Svo bara fór ég. Án þess að vita neitt, gæti ekki einu sinni
séð framan í Sigga til að vita hvernig honum liði með það sem kæmi til með að
ganga á, næst þegar hann myndi hitta áðurnefndan yfirmann. Ég hefði ekkert
þurft að velta því fyrir mér því kvöldið eftir þann ágæta fund hringdi Siggi og
sagði mér það að uppsögnin hefði verið dregin til baka, með afsökunarbeiðni
fyrir bráðlætið. Þá varð Stebba soldið glöð í hjartanu.
> >
Af þessu má,
börnin góð, draga lærdóm. Hugsa fyrst, tala svo. Segðu það sem þú meinar,
meintu það sem þú segir. Þeir taka það til sín sem eiga það!
> >
Nú, að lokum
vil ég segja það að ég fékk skrítnar skonsur í kaffitímanum, þær voru úr
appelsínusafa, og ég er komin með ógeð á „kötturinn með höttinn“
> >
Góðar stundir,
Stebba
sullumbulla!!
»
21.03.2009 21:19:18 / stebba
...kvitta?
»
18.03.2009 09:40:03 / stebba
...ég horfi á þær líka. Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart, þegar birtast fréttir af rýmingum á snjóflóðasvæðinu, þá er neikvæðasta manneskjan í byggðarlaginu fundin og talað við hana um rýminguna. Nú er ég kannski dómhörð, kannski setur fréttafólkið fréttina þannig upp og kannski, kannski, kannski EN.... Að kvarta yfir því að vera látin vita af því að maður er í lífshættu finnst mér vera hámark vanþakklætisins. „Auðvitað verða börnin fyrir raski, en maður verður bara að þola þetta“ „Mann langar ekkert að heiman en manni er ekki gefið neitt val, við verðum að fara úr húsinu.“ Er fólk að búa á snjóflóðasvæðum til að drepa sig? Þykir þeim meira mál að fá að vera í hættulega húsinu sínu heldur en að koma í veg fyrir að börni þeirra deyi kannski í snjóflóði! Ég man eftir ógeðis snjóflóðavetrinum þegar flóðin féllu á Súðavík og Flateyri. Ég var krakki hinumegin á landinu sem varla hafði séð snjó. Fyrir hönd þeirra sem hafa lent í snjóflóði eða misst í snjóflóði: Þú, sem þolir ekki rýminguna, flyttu í burtu og hættu að væla! Þú, sem skammast yfir að aðrir „þurfi að þola rýmingar“notaðu hausinn, það er verið að bjarga lífum. Sýnið fólkinu sem er, oftar en ekki og oftar en þig grunar, að leggja sig í hættu til að bjarga þér, sýnið þeim virðingu. Þó ekki sé nema að halda kjafti yfir þinni eigin fávisku og vanþakklæti. Núna vil ég taka fram að ég bý ekki á snjóflóðasvæði. Ég hef aldrei gert það. EN ef þú velur að búa þannig þá skaltu muna að böggull fylgir skammrifi. Og vertu svo þakklát/ur fyrir að einhver nennir að passa þig þ´vi þú hefur greinilega ekki kvarnirnar í það!! Stebba sem gjörsamlega blöskrar!
»
13.03.2009 14:09:49 / stebba
...að hann þarf á Jesú að halda?
Mér er spurn!!
Nú, eins og staðan er, bara hér á okkar fallega Íslandi þá
hefur þjófnuðum fjölgað stórlega, bæði innbrotum og eins búðarhnupli.
Hundruðir eru atvinnulausir og jafnvel von á enn fleirum í
þann flokk. Í sambandi við það, veit einhver hve margir eru í mínum sporum,
þ.e. eru atvinnulausir en ekki á skrá yfir atvinnulausa því við eigum ekki rétt
á bótum?
Fjöldi fólks hefur ekki efni á að borga skuldinar sínar,
hvað þá að fæða og klæða fjölskylduna sína. Sem betur fer eru hjálparstofnarnir
hérna sem geta hlaupið undir bagga með fólki.
Grófum líkamsárásum fer fjölgandi, sífellt oftar heyrast
fréttir af íslenskum morðum, sjálfsmorð verða tíðari, meira að segja svo tíð að
það er orðinn grundvöllur til að rannsaka sjálfsmorðshrinur á Íslandi, eða eins
og gárungar kalla það smitandi sjálfsmorð.
Þunglyndið og kvíðinn í þjóðfélaginu er orðið slíkt og
þvílíkt að börn og unglingar eru sérstakur áhættuhópur.
Ábyrgðarleysi er ríkjandi, samfélagið er orðið svo vafið í
sjálft sig, ekkert skiptir máli nema „ég“ og hvað er best fyrir „mig“, að meira
að segja stjórnmálamenn, alþingismenn og ráðherrar sem eru ráðnir af þjóðinni
til að bera ábyrgð og hugsa um hag annarra benda í sífellu hver á annan og
hrópa hver upp í annan „það var ekki ég, þessi geri það“. Meira að segja þjóðin
sjálf, sem heimtaði breytingar er ekki sátt á meðan breytingarnar eru að verða.
Þjóðin sjálf, sem heimtaði að ráðamenn sýndu ábyrgð kastar til hendinni þegar
kemur að því að segja sína skoðun og kjósa nýtt fólk til starfa.
Hvenær verður botninum náð og fólk viðurkennir að við getum
þetta ekki sjálf??
> >
Þá er rétt að taka til athugunar síðasta blogg.
Ég verð að byrja á að biðjast afsökunar á þessum bullendi
hjá mér. Ég á ekki að segja eitthvað sem ég meina ekki, ekki einu sinni til að
grínast. Hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að fólk skilji
kaldhæðni á prenti?? Ég ætla ekki að taka til baka það sem ég sagði, það er
tilgangslaust. Það sem ég ætla að gera er að viðurkenna að það var rangt.
> >
Næst er það að láta fljóta með örlitlar fréttir af
familíunni.
Pabbi varð fimmtugur um daginn, til hamingju með það, gamli.
Siggi er á haus í lærdómi. Ofan á það heklar hann og saumar
í kapp við mömmu og það nýjasta er að lesa sér til skemmtunar. Hver tók manninn
minn og hvenær á að skila honum??
Snædís er skárri af útbrotunum, en alls ekki góð. Hún fer
til ofnæmislæknis þegar við förum suður í apríl og vonandi fær hún tíma hjá
húðlækni þá líka. Við erum að bíða eftir hringingu!! Það veit nefnilega enn
enginn hvað er að henni. Ef einhverjum dettur eitthvað í hug sem er ekki
psoriasis, exem eða streptokokkar þá eru allar hugmyndir þegnar. Eins koma ekki
til greina mjólkur, hveiti, hnetu, eggja, dýra ofnæmi, ekki heldur sápur og
þvottaduft, laukur, tómatar og kanill. Það er búið að gera próf við sumu og
annað tókum við af henni, ekkert breyttist!
Anna María er alltaf meira og minna stífluð, við höfum
reyndar sloppið við eyrnabólgu undanfarið. Síðan við fórum að setja dropa í
nefið á henni áður en hún fer að sofa!! Svo ég hringdi í Arnar, elskuna!! Hann hélt
að það væri nú lítið mál að koma henni í nefkirtlaaðgerð. Hún væri reyndar
einfaldlega of lítil til að taka hálskirtlana, en þeir verða þá bara teknir
þegar hún hefur stærðina í það!! Bara alveg sjálfsagt og ekkert mál! Ég var
búin að undirbúa mig undir suð og tuð og rökfærslur. Ég var búin að sjá fyrir
mér að ef ekkert gengi myndi ég tjalda í garðinum hjá honum þangað til krakkinn
kæmist í aðgerð. Svo bara var ekkert sjálfsagðara! Hún er reyndar í léttasta
lagi, en hún hefur ekki þyngst um gramm síðan í ágúst, geri aðrir betur! Hún er
enn bara 11,1 kg, trítill!!
Nú, þá er að ég, eða við! Það er reyndar ósköp lítið að
frétt. Ég er komin einhverjar 18 vikur, en finn engar hreyfingar. O g það
hræðir mig! Ég var sko löngu farin að finna fyrir ÖnnuMaríu, en hún var heldur
ekki kyrr eitt einasta augnablik í bumbunni! En ég finn ekkert til og er ekkert
skrítin, nema bara að ég finn ekkert til! Jú, það er reyndar dásamlegur verkur
sem ég fæ í liðböndin framan á mjöðmunum (vona að þið fattið hvar) þegar ég
stend upp. Það er SÁRT!! Svo til að auka á dularfullleikann (orðsmiðurinn
Stefanía!!) þá er ég strax farin að finna fyrir samdráttum og það hræðir mig
enn meira! En aftur, ég finn ekkert til, svo.... En ég fer í sónar eftir 2
vikur, mér skilst að Rúnar hennar Jónu Bjargar fái mig í hausinn í öllu mínu
veldi! Aumingja hann!! Engin venjuleg Hvammskona þar á ferð! Ónei, það er sko
skessan í fjallinu sem kemur!!
Jæja, er þetta ekki nóg?
»
03.03.2009 13:16:46 / stebba
...
Hér er hún komin aftur!
Grömmin tínast enn af, sem betur fer. Ég er frekar stolt af
mér, en þarf að benda heimilisfólkinu á að hrósa mér! Þau afsaka sig með því að
ég líti alltaf jafn vel út og þau elski mig alveg jafn mikið eftir sem áður!
Ég veit það alveg! Ég þarf að fá að vita að ég standi mig
vel, ég veit að ég lít ekki vel út!
En ég kom ekki til að kvarta, bara svona sýna smá lífsmark.
Við komumst af því í gærkvöldi að það eru þrjár tennur enn
lausar í Snædísi. Hún ætlar vel tennt í grunnskóla! Í morgun pantaði hún
littlest petshop í afmælisgjöf, sem btw er eftir tvo mánuði! Ekki seinna að
vænna en skipuleggja þetta strax!
Anna María vill bara borða opal og horfa á póstinn Pál.
Helst ekkert annað, nema auðvitað hoppa í sófanum, hoppa á gólfinu, hoppa í
gluggakistunni, hoppa á mömmu, príla á borðum og hillum, vefja sig í gardínur
og nýjasta nýtt, bora í nefið!
Ég hef nýlega gerst meðlimur á facebook, sem væri ekki
frásögu færandi, nema hvað ég fékk meldingu í morgun um það að maðurinn minn
væri nú giftur! Það kom mér skemmtilega á óvart! Ég sendi honum því
hamingjuóskir hið snarasta! Facebook er undraheimur!
Það fer að
styttast í vorið, sem verður væntanlega með virðburðaríkari vorum sem ég hef
upplifað! Fyrst ber það að nefna að 12. apríl fæ ég páskaegg og á afmæli.
Svo á ég
afmæli aftur 22. apríl. Ég verð semsagt fimmtug í vor.
Í vor klára
ég svo námið mitt og mér til einskærrar gleði fæ ég húfu!! Hlakka mikið til að
sjá hvernig hún verður á litinn, kannski bleik!
Nú, Siggi
verður meistari í vor, hann fær líka húfu, vonandi verður hún líka bleik, það
væri nú skemmtilegt!
Svo verður
hún Snædís, díva og drottning, 6 ára einhverntímann þarna á milli annarra stóráfanga.
Hún sér fram á að verða tannlaus í afmælinu, en hefur engar sérstakar áhyggjur
af því, þá verður bara ís í matinn!!
> >
Þar sem það
verður svona agalega mikið að gera í vor, ákvað ég, eða mamma, eða ég, æ, önnur
eða báðar....já, einmitt, að hagsýnast, hentugast og bara ofsalega sniðugast,
væri að Snædís fengi æðislegt afmæli, en við Siggi fengum æðislega ofurveislu
þegar við útskrifumst. Þetta er kannski gert til þess að ég verði ekki of sár
þegar Siggi gleymir afmælinu mínu TVISVAR! Því hann á sannarlega eftir að muna
eign veislu!
Staðsetningin
var vandlega valin með tilliti til hins ótölulega fjölda gesta sem munu vilja
samgleðjast okkur hjónakornunum (það er eins og við ætlum að gifta okkur aftur)
og þar sem við reiknum með að gestirnir muni mögulega dreifast frá Öræfasveit,
alla leið norður á Norðfjörð fannst okkur rétt að ráðast inn á aldraða ömmu, en
ekki segja bjarti, ég er ekki búin að spyrja hann! Þetta er heldur ekki fyrr en
í maí! Meira að segja 23, sem er afmælisdagurinn hans Ossa afa! Svo þetta
verður massavor!
> >
Ég er orðin
aum í fingurgómunum af að pikka, er búin að pikka á tölvu síðan 9 í morgun. Ég
öfunda ekki skrifstofufólk, nema þá sem fá að spila Bubbles!
> >
Ég er farin!
> >
Blessidíbú!
> >
Já, til að
safna kommentum ætla ég að móðga fullt af fólki:
> >
Ég er á móti
samkynhneigðum.
Og svertingjum
Og
rauðhærðum
Og örvhentum
Og þeim sem
skeina sér með vinstri
> >
Sjáum
hvernig það virkar!
»
27.02.2009 13:43:47 / stebba
Loforð Guðs
> >
Ég aldrei
hef lofað að brautin sé bein
og gullskrýddir
blómsveigar alla leið heim.
Ég get ekki
lofað þér gleði án sorgar
á göngunni
til himins heilögu borgar.
> >
En lofað ég
get þér aðstoð og styrk
og alltaf
þér ljósi þó leiðin sé myrk.
Mundu svo,
barn mitt, að lofað ég hef
að leiða þig
sjálfur hvert einasta skref.
Trúir þú því?
Stebba, sem trúir.
»
Síður: 1 2 3 ... 17
|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag: 11 Alls: 71091
|